is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3737

Titill: 
  • Rúrí : framlag listakonunnar Rúrí til menninga og lista skoðuð í listsögulegu og alþjóðlegu samhengi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um listakonuna Rúrí. Hún fæddist árið 1951 í Reykjavík og lærði myndlist bæði hérlendis og í Hollandi. Rúrí er frumkvöðull á sviði gjörningalistar og innsetninga á Íslandi og verk hennar hafa vakið mikla athygli bæði hérlendis og erlendis. Rúrí vakti fyrst til eftirtektar árið 1974 þegar hún framdi gjörninginn Gullinn bíll en hann fólst í því að ráðast að gullhúðaðri bensbifreið með sleggju í þeim tilgangi að vekja fólk til umhugsunar um efnishyggjusamfélagið og lífsgæðakapphlaupið. Árið 2003 var Rúrí fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum og sýndi þar verk sitt Archive-endangerded waters sem er gagnvirk fjöltækni-innsetning, óður til náttúrunnar og hugleiðing um gildi hennar í nútímanum. Náttúruvernd, tíminn og afstæði heimsins eru hugtök sem eru listamanninum hugleikin og ganga líkt og rauður þráður í gegnum verk hennar. Í þessari ritgerð er fjallað um inntak og boðskap verka Rúríar og þau skoðuð í listsögulegu samhengi. Auk þess er gerð tillaga að því hvernig fjalla má um heimspeki listar hennar, verk og feril í myndmenntakennslu á unglingastigi grunnskóla.

Samþykkt: 
  • 29.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3737


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Rúrí_fixed.pdf965.93 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna