Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3813
Í þessari ritgerð fjöllum við um helstu einkenni ADHD, algengar fylgiraskanir, greiningu, meðferð og hvernig ADHD hefur áhrif á allt fjölskyldulífið. Við teljum að þörf sé á að auka þekkingu á einkennum ADHD til að hægt sé að mæta þörfum þessara barna á viðeigandi hátt. Með aukinni þekkingu minnka fordómar og skilningur eykst. Við vonum að þessi ritgerð sé gott innlegg í fræðslu um ADHD, sem grunnupplýsingar um helstu einkenni barna með ADHD og einnig fjöllum við um meðferðarleiðir og ráð sem virkað hafa vel í vinnu með þessi börn bæði í skóla og á heimili.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
AA-ENDANLEG ritgerd.pdf | 1.19 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Titilsida okkar.pdf | 30 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |