Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3829
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvað vænlegt væri til árangurs þegar leikskóladeild tekur við barni á einhverfurófinu. Rannsóknarspurningin mín var: Hvaða starfsaðferðir eru árangursríkar þegar bjóða skal barn á einhverfurófinu velkomið á deild í leikskóla? Viðtöl voru tekin við sex viðmælendur, þrjá stuðningsaðila og þrjá deildarstjóra af þremur leikskólum í Reykjavík. Viðmælendurnir eru allt konur á mismunandi aldri og með mismunandi reynslu og menntun. Notast var við óstöðluð viðtöl sem er ein tegund eigindlegra rannsóknaraðferða. Helstu niðurstöður sýna að það sem er árangursríkt í starfi með börnum á einhverfurófinu er meðal annars að sem flest starfsfólk sé fagmenntað. Námskeið og fundir eru góð leið til að koma öðru starfsfólki inn í starfið með barninu á einhverfurófinu sem og gott samstarf. Stuðningsaðilinn á að vera hluti af deildinni og nota fagþekkingu sína til að aðstoða önnur börn. Barnið á að vera hluti af hópnum og taka þátt í daglega starfinu á deildinni eftir fremsta megni.
Lykilorð: Nám án aðgreiningar, samstarf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 238.56 kB | Opinn | Heildatexti | Skoða/Opna |