is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3881

Titill: 
  • Gildi lesturs og mikilvægi málörvunar barna : af hverju að byrja strax?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni til B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2009. Í verkefninu er fjallað um gildi lesturs og mikilvægi málörvunar og hlustunar ungra barna og leiðir til bættrar mál- og hljóðkerfisvitundar.
    Í fyrsta kafla verkefnisins er fjallað um gildi lesturs og hvernig börn tileinka sér tungumálið, málþroska og frávik í málþroska. Í öðrum kafla kemur fram hvernig hægt er að þjálfa mál- og hljóðkerfisvitund barna. Einnig er fjallað um HLJÓM-2, skimunarpróf, sem er próf um forspárgildi lestrar. Í þriðja kafla er sagt frá málörvunarleiðum og hvernig hægt er að efla orðaforða. Í fjórða kafla er bent á hlutverk og ábyrgð foreldra og annarra uppalenda á mikilvægi lestur bóka. Einnig hvernig foreldrar og aðrir uppalendur geta haft áhrif á viðhorf barna til bóka.
    Í fimmta kafla verkefnisins er rætt um bókakost heimila, leikskóla og uppbyggingu lestrarstunda. Við gerum okkur grein fyrir mikilvægi ofantaldra þátta en í leiðinni veltum við því fyrir okkur hvernig hægt er að sameina þetta nám á einn stað. Niðurstaðan var sú að útbúa kennsluefni þar sem HLJÓM-2 væri haft til hliðsjónar. Efninu er ætlað að undirbúa börn fyrir lestrarnám en einnig til þess að þjálfa þá þætti sérstaklega sem illa koma út í skimunarprófinu. Efnið samanstendur af málörvunarkassa sem við höfum kosið að kalla Græna kassann. Hann hefur að geyma málörvunarspjöld sem ætlað er að hjálpa kennurum að þjálfa mál- og hljóðkerfisvitund barna í gegnum leik. Þannig geta kennarar á auðveldan hátt nálgast kennsluefnið allt á einum stað. Uppbyggingu og innihaldi kassans eru gerð skil í sjötta og síðasta kafla verkefnisins.
    Lykilorð: Mál- og hljóðkerfisvitund, gildi lesturs.

Samþykkt: 
  • 5.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3882


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni_Elisur_fixed.pdf242.29 kBLokaðurHeildartextiPDF