is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3886

Titill: 
  • Sýndarveruleiki sem tæki í sálfræðimeðferð
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Sýndarveruleiki (SV) er tækni sem gerir fólki kleift að upplifa
    þrívíddartölvueftirlíkingu af umhverfi í rauntíma. SV er blekking og þegar
    vel tekst til upplifir fólk sýndarumhverfi (SU) alveg eins og raunverulegt
    umhverfi. Eftir fjölda rannsókna þar sem kannað hefur hvort SV hafi
    hagnýtt gildi í sálfræðimeðferð má segja að til hafi orðið nýtt
    meðferðarform: sýndarveruleikaberskjöldunarmeðferð (SVBM). SVBM er
    hagað eins og öðrum tegundum af berskjöldunarmeðferð en notast er við
    SU sem hefur marga kosti í för með sér – en einnig galla. Byrjað var að
    rannsaka hvort SVBM gæti verið árangursrík sem meðferð á afmarkaðri
    fælni og rannsóknir sýna að SVBM geti reynst vel við lofthræðslu og
    flughræðslu. Forsenda þess að SVBM gagnist fólki er að það skynji nánd
    SU og er það jafnvel auðveldara fyrir fólk með mikla fælni. Vísindalegur
    bakgrunnur rannsókna um gagnsemi SVBM við öðrum kvíðaraöskunum en
    lofthræðslu og flughræðslu er ekki jafngóður. Bundnar eru miklar vonir að
    SVBM geti verið áhrifarík meðferð við félagsfælni, áfallastreituröskun,
    felmtursröskun með víðáttufælni og lofa rannsóknir góðu. Rannsóknir sýna
    að SV geti einnig hugsanlega reynst vel við meðferð eða greiningu á
    öðrum geðröskunum og vandamálum eins og athyglisbrest og ofvirkni,
    fíkn og átröskunum. Framtíðarmöguleikar SV eru miklir innan sálfræðinnar bæði við rannsóknir og meðferð.

Samþykkt: 
  • 5.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3886


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ingvar_Orri_Bjorgvinsson_fixed.pdf1.02 MBLokaður til...01.06.2052HeildartextiPDF