Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/393
Þessi vefur er unnin sem lokaverkefni mitt á heimilisfræðikjörsviði við Kennaraháskóla Íslands vorið 2007.
Hugmynd mín af uppskriftavefnum varð til þegar ég fór í æfingakennslu hjá Sigurborgu Birgisdóttur heimilisfræðikennara í Lindaskóla í Kópavogi haustið 2006. Fljótlega varð mér ljóst að það væri mjög takmarkað kennsluefni til fyrir nemendur í 8, 9, og 10, bekk. Þessir nemendur eru yfirleitt mjög áhugasamir í heimilisfræði og eru óhræddir við að prófa nýjar uppskriftir og framandi rétti. Uppskriftirnar sem eru á vefnum valdi ég úr ýmsum uppskriftabókum og einnig bjó ég til nokkrar þeirra og þróaði aðrar sérstaklega með það í huga að nemendur á þessum aldri geti eldað eftir þeim og vonandi aukið ánægju þeirra við matseldina.
Í æfingakennslunni í Lindaskóla prófaði ég með nemendum úr 8. og 9, bekk nokkrar uppskriftir á vefnum og gekk þeim mjög vel að vinna eftir þeim og gerðu þær mikla lukku. Á vefnum eru nokkrir linkar inn á efni tengt næringu og heilsu og tel ég það mikilvægan þátt í heimilisfræðikennslunni. M.a. er að finna slóð á þrjár mjög góðar greinar eftir Brynhildi Briem næringarfræðing.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 51.88 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Vefur.zip | 467.8 kB | Opinn | Vefur | GNU ZIP | Skoða/Opna |