Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3946
Verkefnið fjallar um þjónustu Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar við ung fötluð börn og foreldra þeirra.
Í því skyni að varpa ljósi á það sem vel er gert og það sem betur má fara í félagslegri þjónustu var byrjað á því að fræðast um sviðið út frá lagalegri umgjörð og rannsóknum. Einnig félagslegum sjónarhornum á fötlun, snemmtækri íhlutun og fjölskyldumiðaðri þjónustu þar sem horft er á þarfir einstaklings út frá félagslegu umhverfi og þjónusta við barn og fjölskyldu byggist á víðum skilningi á raunverulegum þörfum. Síðan var upplýsinga aflað með þátttökuathugun á Fjölskyldudeild, rituðum heimildum og viðtölum við tvo foreldra fatlaðra barna í leikskóla og tvo starfsmenn Fjölskyldudeildar.
Niðurstöður sýndu að vel er staðið að þjónustu Fjölskyldudeildar við ung fötluð börn í samræmi við æskileg viðmið laga og hugmyndafræði og að foreldrar eru almennt ánægðir með þjónustuna og umgjörð hennar. Huga þarf hins vegar betur að persónulegum stuðningi við foreldra og ráðgjöf í upphafi, hvernig best megi koma upplýsingum á framfæri við foreldra og efla enn frekar þátttöku þeirra í þjónustu við barnið.
Lykilorð: Félagsleg sjónarhorn á fötlun, fjölskyldumiðuð þjónusta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 615.66 kB | Lokaður | Heildartexti |