Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4292
Þessi ritgerð fjallar um svokallað stórstjörnu fyrirbæri (e. superstar
phenomenon) sem koma má auga á í atvinnugreinum þar sem fáir einstaklingar
fá miklu hærri tekjur en restin af atvinnugreininni. Tekjur þessara einstaklinga
mynda bjögun í tekjudreifingu innan viðkomandi atvinnugreinar.
Hagfræðingurinn Sherwin Rosen skrifaði greinina „Economics of Superstars“
árið 1981 sem hefur upp frá því verið grundvöllur að hugsun þessara fræða.
Markmið þessara ritgerðar verður að skoða og skilgreina fyrirbærið. Líkan
Rosen um fyrirbærið verður skoðað. Áherslan verður frekar á
hugmyndafræðina á bak við líkanið en að leiða það út. Einnig verða framlög
nokkurra annarra fræðimanna skoðuð. Sumir þessara fræðimanna hafa aðrar
skoðanir en Rosen á því hvort fyrirbærið sé í raun til staðar. Áhersla verður
lögð á að skoða fyrirbærið út frá dægurlagatónlist (e. pop music). Að lokum
verður framkvæmd rannsókn á því hvort fyrirbærið sé til staðar á markaði fyrir
dægurlagatónlist á Íslandi. Til þeirrar rannsóknar verður notaður
heildarsölulisti platna frá Senu ehf. frá 1. janúar 1994 til og með 30. júní 2008.
Öll árin verða skoðuð sérstaklega og síðan heildarmyndin. Helstu niðurstöður
rannsóknarinnar leiða í ljós að flest árin, en alls ekki öll, eru ummerki um
stórstjörnu fyrirbærið og í heildina að til staðar séu íslenskar stórstjörnur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
u_fixed.pdf | 639.52 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |