is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4314

Titill: 
  • Málflutningur helstu forystumanna Sjálfstæðisflokksins um samrunaþróun Evrópu 1989-2009
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um málflutning forystumanna Sjálfstæðisflokksins um Ísland og samrunaþróun Evrópu frá því árið 1989 þegar viðræður hófust um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og fram til ársins 2009 þegar umsókn um inngöngu í Evrópusambandið var lögð fram í fyrsta sinn af Íslands hálfu. Markmiðið er að varpa ljósi á málflutning forystumannanna, hvernig hann þróaðist og leggja mat á það hvað hafi stuðlað að þeirri þróun. Áherslan er einkum lögð á þá einstaklinga sem gegndu annað hvort embætti formanns eða varaformanns Sjálfstæðisflokksins og höfðu sig í frammi í umræðum um Evrópumál en einnig þá einstaklinga í forystusveit flokksins sem sérstaklega létu sig þessi mál varða. Reynt er að sýna fram á að það sem hafi ekki síður stuðlað að aukinni andstöðu forystumanna Sjálfstæðisflokksins við inngöngu í Evrópusambandið en áherslur á fullveldi og sjálfstæði Íslands hafi verið þróun sambandsins í átt til aukinnar miðstýringar og samruna sem ekki hafi samrýmst hugmyndum um t.a.m. takmörkuð ríkisafskipti, minni miðstýringu og skriffinnsku og frelsi í viðskiptum. Sýna má fram á að aukin andstaða hjá forystumönnum flokksins hafi haldist í hendur við þessa þróun og málflutningur þeirra sýnir að þeir hafi sífellt goldið meiri varhug við hana.

Samþykkt: 
  • 14.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4314


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
1_fixed.pdf33.05 kBOpinnForsíður, ágrip og efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
2_fixed.pdf251.54 kBOpinnInngangur, meginmál, niðurstöður og heimildaskráPDFSkoða/Opna