Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/441
Ritgerðin fjallar um listir og menningu á Álftanesi í tengslum við skólastarf og menntun barna í myndlist. Hún fjallar um tengingu menningararfsins við nemendur grunnskólans og barnamenningu nútímans. Í ritgerðinni eru gömul listaverk skoðuð með það í huga að láta nemendur vinna upp úr þeim myndlistarverk sem og að fræðast um listir fyrri tíma. Einnig var gerð rannsókn á því hvort að styrkir til menningu barna væri sérstaklega skilgreindir í sveitarfélaginu og hvort að aðrir einstaklingar á Álftanesi biðu upp á myndlistarnámskeið fyrir utan hefðbundinn skólatíma og það borið saman við bæði Hafnarfjörð og Garðabæ. Þá fjallar ritgerðin um gildi myndlistar fyrir börn og nauðsyn þess að nýta tölvur í kennslu í myndmennt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 1.97 MB | Lokaður til...01.10.2132 | Heildarskjal |