Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/443
Talið er að tilvist þrávirkra lífrænna efna í vistkerfi jarðar sé einn alvarlegasti umhverfisvandi heimsins. Díoxín og díoxínlík PCB-efni eru þrávirk lífræn efn sem eru mjög stöðug, safnast fyrir í fituvef lífvera og magnast í þeim eftir sem ofar dregur í fæðukeðjunni. Skaðsemi þeirra byggist aðallega á þessum stöðugleika þeirra.
Uppruni díoxíns og díxoínlíkra PCB-efna er aðallega frá iðnvæddum svæðum heims. Þaðan dreifast þau um allan hnötinn eftir ýmsum leiðum. Þau berast aðallega í menn með fæðu sem menguð er af efnunum. Ýmislegt hefur verið gert til að minnka losun díoxíns og díoxínlíkra PBC-efna út í umhverfið en þó er enn margt hægt að gera, bæði til að minnka losun og minnka váhrif.
Í umhverfis- og lífræðilegum sýnum eru díoxín og díoxínlík PCB-efni að öllu jöfnu flókin blanda mismunandi efnamynda. Þess vegna var hugtakið eiturefnajafngildi (TEQ, toxic equivalent ) komið á til að hægt væri að gefa upp styrk fyrir blöndu díoxíns og nýlega einnig fyrir díoxínlík PCB-efni. Þetta var gert til að auðvelda framkvæmd á áhættumati og í reglugerð sem segja til um leyfileg hámörk efnanna. Vikuleg neysluþolmörk hafa verið sett 14 pg WHO-TEQ/kg og hámarksviðmiðunargildi fyrir díoxín og díoxínlík PCB-efnia í matvælum voru sett til að koma í veg fyrir að neysla efnanna færi yfir neysluþolmörkin. Við mat á þessum mörkum var ítalega farið yfir tiltækar rannsóknir um efnin.
Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar á skaðsemi díoxíns og díoxínlík PCB-efni bæði á menn og dýr. Nokkrar rannsóknir voru kannaðar þar sem sýnt var fram á tengsl styrks díoxíns við krabbamein og annað sem getur hrjáð fólk. Hins vegar hefur oft ekki verið hægt að sýna fram á afdráttarlaust sambandi orsaka og afleiðinga milli skaðsemi og díoxíns og díoxínlíkra PCB-efna. Það bendir þó margt til þess að að díoxín og díoxínlik PCB-efni hafa margvísleg skaðleg áhrif. Vegna þessa áhrifa er nauðsynlegt að gera almenningi betur grein fyrir skaðseminni og hvernig við verðum fyrir váhrifum af völdum díoxíns og díoxínlíkra PCB-efna. Þá getur almenningur stýrt kaupum og neyslu þannig að váhrifin verði sem minnst.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
dioxin.pdf | 395.81 kB | Lokaður | Díoxín og díoxínlík efni - heild | ||
dioxin_e.pdf | 109 kB | Opinn | Díoxín og díoxínlík efni - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
dioxin_h.pdf | 118.84 kB | Opinn | Díoxín og díoxínlík efni - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
dioxin_u.pdf | 82.14 kB | Opinn | Díoxín og díoxínlík efni - útdráttur | Skoða/Opna |