Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/450
Vefurinn Erró – Námsvefur, er náms- og kennsluefni í myndlist ætlað nemendum á unglingastigi grunnskólans og kennurum þeirra. Á honum er að finna upplýsingar af ýmsu tagi um myndlistarmanninn Erró – lífshlaup hans, verk, aðferðir og þær stefnur sem verk hans má kenna við. Á vefnum er einnig að finna fimmtán fjölbreytt verkefni ásamt tillögum að námsmati en öll tengjast verkefnin lífi og list Errós á einn eða annan hátt. Vefurinn er byggður upp með markmið Aðalnámskrár grunnskóla í huga. Greinargerðin lýsir framkvæmd verkefnisins, fjallar um mikilvægi myndlistarkennslu í skólastarfi, hvaða gildi námsvefur um myndlist hafi og hvernig byggja má námsefni í myndlist á hugmyndafræði einstaklingsmiðaðs náms og fjölgreindakenningar Howards Gardner. Leidd eru rök að því að vefur sem þessi sé vænleg leið til að kenna og efla þekkingu nemenda á myndlist og vel til þess fallinn að stuðla að auknum áhuga þeirra á faginu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 195.43 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Vefur.zip | 15.26 MB | Opinn | Vefur | GNU ZIP | Skoða/Opna |