is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4519

Titill: 
  • Innan seilingar. Upplýsingaleiðir vísindamanna og öflun heimilda
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin var gerð árin 1996–1998 og var megintilgangurinn að skoða hversu
    aðgengileg vísindarit voru raunvísindamönnum á nokkrum íslenskum rannsóknarstofnunum
    og hvernig þeir fylgdust með á sérsviði sínu. Rannsóknin var þríþætt og var
    beitt bæði megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum. Þær fyrrnefndu fólust í
    greiningu tilvitnana og könnun meðal vísindamannanna og hinar síðarnefndu í opnum
    viðtölum við þá. Með tilvitnanagreiningu var skoðuð staðsetning heimilda sem starfsmenn á fimm rannsóknarstofnunum á sviði raunvísinda í Reykjavík vitnuðu til árin 1994 og 1995. Leiddi hún í ljós að 83% þeirra íslensku ritverka sem vitnað var í fundust
    á bókasöfnum stofnananna en tæp 65% erlendu ritverkanna. Hægt var að fá um 97%
    greina í erlendum fagtímaritum sem vitnað var í á viðkomandi bókasöfnum eða útvega
    þær frá öðrum söfnum á Íslandi eða á hinum Norðurlöndunum. Stutt spurningakönnun
    um heimildir, sem send var 85 vísindamönnum (21 konu og 64 körlum) á sömu rannsóknarstofnunum, leiddi í ljós að flestar tilvitnanir höfðu menn fundið í
    heimildalistum og næstflestar höfðu félagar bent þeim á. Frá félögum fékk fólk einnig
    mikið af þeim ritum sem það vitnaði til en meirihlutinn fékkst á bókasafni stofnunar eða
    í millisafnaláni. Í opnum viðtölum við 15 raunvísindamenn (5 konur og 10 karla) á níu
    stofnunum kom fram að sambönd við aðra vísindamenn, vinna í innlendum og erlendum
    teymum og ráðstefnur væru mikilvægustu þættirnir í að fylgjast með í faginu, auk þess að fylgjast reglulega með efni 2–11 tímarita sem flestir gerðu. Sumir treystu eingöngu á félaga en aðrir notuðu fjölbreyttar aðferðir. Meginniðurstöður voru þær að ritakostur ásöfnum stofnananna svaraði þörfum vísindamannanna nokkuð vel, þótt það væri misjafnt eftir stofnunum.

Samþykkt: 
  • 11.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4519


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA_GP_ritgerd_fixed.pdf1.28 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna