is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Lokaverkefni í félagsvísindadeild (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4520

Titill: 
  • Eflir persónukjör lýðræði
Titill: 
  • Will personal vote enchance demorcracy
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Krafan um eflingu lýðræðis hefur verið hávær í samfélaginu undanfarin ár. Ríkisstjórnin
    hefur brugðist við þeirri kröfu með því að leggja fyrir Alþingi stjórnarfrumvarp til laga
    um breytingar á kosningalögum í átt til meira persónukjörs. Yfirlýst markmið
    frumvarpsins er að efla lýðræði með valddreifingu og auka traust á Alþingi.
    Þar sem hugmyndir almennings um lýðræði eru um margt ólíkar eru tengsl lýðræðis og
    persónukjörs skoðuð í víðu samhengi. Tengslin eru rædd út frá mögulegum afleiðingum
    persónukjörs og nokkrum helstu kenningaskólum um lýðræði þ.e. kenningum
    kjarnræðissinna, margræðissinna og kenningum um þátttökulýðræði. Í persónukjöri
    skiptir persónuleg fylgi frambjóðenda máli. Nái frumvarpið fram að ganga færist valdið
    til að raða á framboðslista til kjósenda og því dregur úr flokksræði og þar með líklega
    flokksaga. Auk þess gerir persónukjör illmögulegt að beita kynjakvóta.
    Helstu niðurstöður eru þær að persónukjör muni ekki svara lýðræðiskröfum
    kjarnræðissinna. Það verður einnig að teljast ólíklegt að það svari kröfum þeirra sem
    aðhyllast þátttökulýðræði. Það væri helst að margræðissinnar teldu lýðræði eflast vegna
    þess að persónukjör dreifir valdi meira. Á móti kemur að auknar líkur á of miklu
    áhrifavaldi fjársterkra hagsmunaaðila og áhrifamikilla samtaka aukast með áherslu á
    persónulegt fylgi og slíkt gæti unnið á móti valddreifingu. Auk þess eru leiddar að því
    líkur að persónukjör geti fremur dregið úr en aukið traust á Alþingi og kjörnum
    fulltrúum. Persónukjör gæti einnig veikt stjórnmálaflokka það mikið að þeim reynist
    erfitt að sinna lýðræðislegu hlutverki sínu.

Samþykkt: 
  • 11.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4520


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
kristin_anna_pdf.pdf478.36 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna