is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4535

Titill: 
  • Akraneshöfn: hönnunartillaga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lokaverkefni þetta til B.S. prófs frá umhverfisskipulagsbraut við Landbúnaðarháskóla Íslands fjallar um höfnina á Akranesi. Meginmarkmið verkefnisins er tvíþætt:
    1. Greina þróun og stöðu hafnarinnar.
    2. Koma fram með hönnunartillögu þar sem útgerð, mannlíf, ferðamennska, einkenni hafnarinnar, sterkari tengsl við íbúa, sjálfbær þróun og endurnýting eru höfð að leiðarljósi.
    Höfnin er skoðuð útfrá því hver framtíð hennar sé, hver þróunin hefur verið, hver staða hennar er í dag og hvaða hættur eru yfirvofandi í framtíðarþróun hennar. Í því samhengi er stefna Akraneskaupstaðar skoðuð, farið er yfir hafnarsögu, þróun útgerðar og nýtingu hafnarinnar. Til þess að greina gerð hafnarinnar og þær hættur sem gætu ógnað tilveru hennar útfrá fræðilegum grunni er stuðst við bókina Havnemiljø i Norden sem er samsafn greina um norrænar hafnir sem Norræna ráðherranefndin lét taka saman og gefa út. Greiningar eru gerðar á umhverfi hafnarinnar, aðgengi, nýtingu, mannvirkjum, ásýnd, áhrifum náttúruafla og tengingum við aðliggjandi svæði.
    Greiningarnar eru nýttar í hönnunar tillöguna til þess að ná settum markmiðum. Niðurstöður eru þær að hægt er að hanna hafnarumhverfi sem hefur aðdráttarafli fyrir fólk og ferðamenn án þess að hið eiginlega hafnarlíf hverfi, höfnin haldi einkennum sínum með endurnýtingu mannvirkja og styrkja megin tengsl við aðliggjandi svæði og íbúa með auknu aðgengi. Hafnir hafa mikið gildi í sjávarplássum og með réttri skipulagningu er hægt að auka þau verðmæti sem hafnarsvæðið hefur upp á að bjóða, gera það eftirsóknarvert svæði fyrir alla.

Samþykkt: 
  • 16.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4535


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSritgerð Höfnin DrífaG.pdf6 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna