is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4572

Titill: 
  • Umhverfi dvalarheimila hvati til lífsgæða eða hlutlaus umgjörð
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangefnið í þessu verkefni er mikilvægi útisvæða við dvalarheimili og hvaða áhrif
    þau hafa á heilsu og lífsgæði aldraða. Markmiðið er að svara spurningunni: Hvernig er aðgengi og aðstaða aldraða á útisvæðum við dvalar- og hjúkrunarheimili. Til þess að nálgast viðfangsefnið var gerður gátlisti sem var að mestu unnin upp úr bókinni Aðgengi fyrir alla. Leitast var eftir að svara spurningum eins og hvaða þættir
    einkenna gott útisvæði, getur aðgengi, skipulag, byggingartími, rekstarform, framtíðarskipulag og landfræðileg staðsetning haft áhrif á notkun svæðanna. Þau heimili sem valin voru til skoðunar eru, Dvalarheimilið Höfði Akranesi, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, Grund í Reykjavík og Skógarbær, Reykjavík. Við valið var reynt að fá fram sem mesta breidd bæði hvað varðar rekstur, stærð og staðsetningu. Farið var í nokkrar vettvangsferðir á valin svæði, teknar ljósmyndir,
    gátlisti fylltur út og rætt við forsvarsmenn og heimilisfólk. Það má segja eftir úttektina að aðgengi og aðstaða er misgóð. Á þremur stöðum var
    aðgengi almennt í lagi en á einum staðnum er það mjög lélegt. Við þau þrjú heimili sem voru í lagi er ljóst að aðgengi og skipulag hefur áhrif á notkun svæðanna og heimilið sem kom verst út er með lélegasta aðgengið, þar er útisvæðið minnst notað. Ekki er sýnilegt að þættir eins og byggingartími, rekstrarform og staðsetning
    heimilanna hafi afgerandi áhrif á niðurstöður. Besta dæmið um þetta er Dvalarheimilið Höfði á Akranesi sem er næst elsta dvalarheimilið og með besta aðgengið. Rekstarform og staðsetning virðist ekki hafa áhrif þegar gæði útsvæða eru skoðuð. Framtíðarskipulag þeirra svæða sem skoðuð voru í þessu verkefni sýndu að á þremur af þessum fjórum stöðum er verið að stækka dvalarheimilin og
    flest allar viðbyggingarnar eru áætlaðar fjórar til sjö hæðir það er hreinlega að vera að byggja inn á vel hönnuð útisvæði og með þessum stækkunum er í öllum tilfellum verið að skerða dvalarsvæðin, minnka útsýni, auka skuggamyndun og rjúfa
    tengingar við svæðið Mjög lítið hefur verið skoðuð notkun og aðgengi aldraðra að útisvæðum og áhrif
    skipulags. Það er mikilvægt fyrir framtíðina að efla rannsóknir á því hvernig aðgengi og skipulagi er háttað við dvalarheimili landsins.

Samþykkt: 
  • 23.3.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4572


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS Marta María Jónsdóttir.pdf27.56 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna