Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/459
Í þessu verkefni er fjallað um nýjan rannsóknabát við útibú Hafrannsóknastofnunarinnar á Akureyri. Valdar voru þrjár bátsgerðir og þær bornar saman með tilliti til þeirra forsenda sem starfsmenn Hafrannsóknastofnunarinnar á Akureyri hafa sett varðandi bátinn og í kjölfarið var gerður samanburður við núverandi bát útibúsins, Einars í Nesi EA-49. Leið 1 fjallar um Cleopötru 38, leið 2 um Seig 1400, leið 3 um Víking 1340.
Út frá fræðum skipatækninnar eru gerðir þyngdar og þyngdarpunktsútreikningar fyrir eina af þessum bátsgerðum og gefa þeir raunhæfa mynd af því hvaða áhrif aukabúnaður hefur á stöðugleika bátsins. Einnig var bátunum stillt upp á togi og toggeta þeirra ákvörðuð.
Niðurstaðan er sú að ekki er þörf á að fjölga í áhöfn ef fjárfest er í þeim bátum sem rannsakaðir voru. Bátarnir uppfylla allar kröfur útibúsins um ganghraða, stærð og fjölhæfni. Mælt er með bátsgerðinni Víkingi 1340 en kostnaður við kaup á slíkum bát er lítið hærri en við Cleopötru 38. Það sem hefur endanleg áhrif á niðurstöðuna er það að Víkingur 1340 er stærri og því rúmbetri en Cleopatra, og býður einnig upp á meiri ganghraða.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
greining.pdf | 810.41 kB | Takmarkaður | Heildartexti | ||
greining_e.pdf | 150.77 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
greining_h.pdf | 121.98 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
greining_u.pdf | 114.21 kB | Opinn | Greining og rekstrarlegur grundvöllur á nýsmíði rannsóknarbáts fyrir útibú Hafrannsóknastofnunarinnar - útdráttur | Skoða/Opna |