Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/462
Þetta er lokaritgerð til B.ed. prófs frá Kennaraháskóla Íslands árið 2007. Hún fjallar um gagn leiklistar sem kennsluaðferðar í mikið getublönduðum bekk. Öll erum við ólík og að sama skapi höfum við ólíkar námsþarfir. Leiklist er kennsluaðferð sem kemur til móts við þarfir flestra nemenda.
Í ritgerðinni er fjallað um kennslu í mikið getublönduðum bekk, fjölgreindakenningu Howard Gardners og tengsl hennar við leiklist. Þá er fjallað um þróun leiklistar í kennslu á Bretlandi og þróun hennar á Íslandi. Þessu fylgir greining á því hve hentug leiklist er sem kennsluaðferð, hverjum hún hentar, hvort allir geti notað hana og hvers vegna gagnlegt er að nota leiklist í kennslu.
Leiðsögukennari ritgerðarinnar var Ása Helga Ragnarsdóttir, stundakennari við Kennaraháskóla Íslands, og fær hún bestu þakkir fyrir góða handleiðslu og hvetjandi viðmót.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 227.35 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |