is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4690

Titill: 
  • Hvaða námssvið Aðalnámskráar leikskóla er unnið með í útikennslu og hvernig er kennslunni háttað?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs frá leikskólabraut við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka umræðu um möguleika og takmarkanir útikennslu í leikskólastarfi. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort og þá hvernig væri unnið með námssvið Aðalnámskráar leikskóla í útikennslu í leikskólastarfi.
    Rannsóknin fór fram í Björnslundi sem er útikennslustofa leikskólans Rauðhóls í Norðlingaholti haustið 2009. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 23 börn fædd á árunum 2004 til 2006 og fimm starfsmenn leikskólans Rauðhóls. Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð sem fólst í þátttökuathugunum, myndbandsupptökum og viðtölum við þrjá leikskólakennara.
    Niðurstöður rannsóknarinnar eru að í Björnslundi var unnið með öll námssvið Aðalnámskráar leikskóla en þó mismikið eftir námssviðum. Í ljós kom að unnið var faglegt og skapandi starf í útikennslu. Björnslundur er ný leikskóladeild en þrátt fyrir það er starfið orðið mjög þróað og gott. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að það starf sem unnið var í Björnslundi sé öðrum skólum til fyrirmyndar.

Athugasemdir: 
  • Rannsókn í samstarfi við leikskólann Rauðhól
Samþykkt: 
  • 16.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4690


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
sigurlauglokaritgerd_fixed.pdf1.87 MBLokaðurHeildartextiPDF