Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4769
Ritgerð þessi beinist að núverandi stöðu atvinnumála sveitarfélaga á Íslandi og hvaða leiðir sveitarfélög hafa farið í atvinnuþróun og nýsköpun. Á Íslandi eru 77 sveitarfélög í dag og eru dæmi um að þau fari mismunandi leiðir í atvinnumálum.
Reynt verður að komast að hinu almenna hlutverki sveitarfélaga í atvinnuþróun og nýsköpun og skoða hvaða leiðir sveitarfélög hafa farið. Síðar verður Sveitarfélagið Hornafjörður tekið sérstaklega fyrir, sú leið sem Hornafjörður hefur farið í atvinnumálum verður svo borin saman við það sem sveitarfélög eru að gera almennt.
Í ritgerðinni er komist að því að hlutverk sveitarfélaga í atvinnumálum sé illa skilgreint og það hvergi tekið fyrir í sveitarstjórnarlögum. Niðurstöður benda til þess að hið almenna hlutverk sveitarfélaga og sú leið sem Hornafjörður hefur farið séu afar svipuð. En sérstaða Hornafjarðar í nýsköpun og atvinnumálum er þróunarsetrið Nýheimar sem reist var árið 2002. Sú starfsemi sem þar fer fram er nær því einsdæmi á landinu. Gæti þessi leið sem Hornafjörður hefur farið í atvinnumálum trúlega verið fyrirmynd annarra sveitarfélaga þegar kemur að atvinnuþróun og nýsköpun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð.pdf | 622.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |