is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4780

Titill: 
  • Öryggissamstarf í Evrópu eftir Kalda stríðið
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Við lok Kalda stríðsins urðu breytingar á öryggismálum Evrópu. Farið var úr kerfi þar sem
    tvö stórveldi stóðu andspænis hvort öðru, yfir í kerfi með einu ráðandi afli. Þetta ráðandi afl,
    Bandaríkin, dró fljótt úr herafla sínum í Evrópu og voru skilaboðin sú að Evrópumenn skildu
    sjá um sín mál sjálfir. Þegar ófriðurinn á Balkanskaga braust út á tíunda áratug síðustu aldar
    þá varð fljótt ljós að Evrópuríkin höfðu ekki burði eða getu til að sjá um öryggismál álfunnar.
    Endurskoðunar var þörf. Þessi endurskoðun varð til þess að öryggis- og varnarsamstarf
    Evrópu þróaðist og Evrópa fór að taka meiri þátt en áður í friðargæsluverkefnum og öðru
    slíku. Upphafið af þessu samstarfi var ekki ágreiningslaust. Bandaríkin, sem sáu fram á að
    áhrif þeirra myndu minnka, voru ekki mjög hrifin af þessu. Tvær kenningar í
    alþjóðastjórnmálum útskýra á vissan hátt mismunandi viðhorfs Bandaríkjanna og
    Evrópumanna til öryggismála. Þær kenningar eru realismi og frjálslynd alþjóðahyggja.

Samþykkt: 
  • 27.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4780


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA.pdf243.6 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
forsíða.pdf28.84 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna