is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4790

Titill: 
  • Ólíkar hliðar mansals, með áherslu á Eystrasaltslöndin
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um skilgreiningar á hugtakinu mansali og hinar ólíku birtingarmyndir þess. Farið er yfir Palermó-samninginn sem var undirritaður árið 2001 fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna til að efla baráttu gegn mansali. Skoðaðar verða skilgreiningar mansals í samningnum en yfir eitt hundrað lönd hafa inleitt mörg ákvæði samningsins í lög. Jafnframt eru tekin dæmi um slík lagaákvæði í nokkrum löndum Evrópu.
    Mansal hefur aukist mikið síðasta áratug í Evrópu og um það er fjallað hér og sérstaklega tekin dæmi frá Eystrasaltslöndunum. Tekin eru dæmi um hin ýmsu afbrigði mansals eins og barnamansal, nauðungarvinnu og kynlífsþrælkun og dregin upp mynd af því hvernig það kemur fram og á hvern hátt barist er gegn því.
    Að lokum er fjallað um lög og reglugerðir sem tengjast baráttunni gegn mansali í Evrópu og hvernig hin ýmsu samtök hafa komið fórnarlömbunum til aðstoðar.

Samþykkt: 
  • 28.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4790


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
b.a ritgerðin.pdf197.67 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
b.a forsíða.pdf40.85 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna