is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4802

Titill: 
  • Siðræn tíska í ljósi hnattvæðingar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Fjallað verður um sögu íslensks fataiðnaðar og hvernig hann
    hefur þróast síðustu öldina. Farið verður inn á hvernig fataiðnaðurinn um allan
    heim hefur breyst í ljósi í hnattvæðingar en iðnaðurinn hefur færst að miklu leyti
    yfir til vanþróaðri ríkja þar sem verkafólk þarf oft á tíðum að líða ómannúðlegar
    aðstæður og kjör. Stuðst verður við kenningar fræðimanna um hnattvæðingu,
    samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og neysluhyggju og skoðað til hliðsjónar hvernig
    neyslumynstrið hefur breyst. Í framhaldi verður fjallað um siðræna neyslu
    Íslendinga, siðræna tísku og samtök sem vekja athygli á slæmum aðstæðum
    verkafólks í vanþróaðri ríkjum og fletta ofan af slæmum viðskiptaháttum
    fyrirtækja.
    Rannsókn ritgerðarinnar er tvíþætt. Í fyrsta lagi verður skoðað hver
    umfjöllun helstu dagblaða voru um þessi málefni frá árunum 2008 til 2010 og í
    öðru lagi tekin viðtöl við íslenska fatahönnuði um framleiðsluferlið og siðræna
    tísku. Niðurstöður ritgerðarinnar staðfesta að hér á landi er skortur á umfjöllun á
    siðrænum málefnum er kemur að samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja og
    sanngjörnum viðskiptaháttum og Íslendingar virðast lítið vera að velta fyrir sér
    siðrænni tísku.

Samþykkt: 
  • 29.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4802


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Endanleg ritgerð með forsíðu.pdf606.53 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna