is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4825

Titill: 
  • Flamenco: una introducción desde su origen hasta nuestros días. El grito del pueblo
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um flamengó, sem er talið vera um það bil þriggja alda gamalt listform sem á uppruna sinn í Andalúsíu á Spáni, og er tjáð í gegnum söng, dans og gítarleik. Fjallað er um uppruna flamengósins og þátt sígauna í sköpun þess ásamt því að stiklað er á stóru um sögu sígauna á Spáni og ferðalag þeirra þangað. Þá er einnig farið yfir sögu flamengósins og litið á þau tímabil sem hafa haft mikilvæg áhrif á þróun listgreinarinnar. Áður en fjallað er um sönginn, sem er upprunalegt form flamengósins, er farið yfir þau stílbrigði sem fyrirfinnast innan flamengósins og nokkur grundvallarhugtök útskýrð sem gerir lesanda kleift að skilja betur um hvað er að ræða þegar lengra er haldið. Þegar fjallað er um sönginn er farið yfir sögu hans allt frá því hvernig talið er að hann hafi fyrst orðið til og hvernig fyrstu hrópin hafa þróast í það sem í dag þekkist sem flamengó. Jafnframt er rætt um notkun orða úr fornu máli sígauna í flamengó lögum, ásamt því að skoða helstu umfjöllunarefni laganna og kynna til sögunnar eina frægustu persónu flamengósins fyrr og síðar, Camarón de La Isla. Síðan er farið yfir uppruna, sögu og þróun flamengó gítarsins og jafnframt er talað um önnur hljóðfæri sem tilheyra flamengói ekki upprunalega, en eru mikið notuð í flamengó tónlist nú til dags. Þá er komið inn á nýjustu stefnur innan flamengósins og hvað er að gerast í nútíma flamengó tónlist. Síðan er farið yfir sögu og þróun dansins og fjallað er um viðeigandi fatnað og skóbúnað og að lokum er allt efni ritgerðarinnar dregið saman í niðurstöðu og lokaorð.

Samþykkt: 
  • 29.4.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4825


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerd í heild.pdf1.59 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Forsída ofl.pdf198.78 kBOpinnForsíða, titilsíða, ágrip, efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Flamenco- una introducción desde su origen hasta nuestros días. El grito del pueblo..pdf1.41 MBOpinnMeginmál, heimildarskrá, viðaukarPDFSkoða/Opna