Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4836
Hér á landi eru um það bil 05-07 % einstaklinga með geðfötlun. Lögum samkvæmt hafa þeir einstaklingar rétt á stoðþjónustu og búsetuúrræðum. Á undanförnum árum hefur þjónusta þessa hóps tekið breytingum og færst frá langtímameðferðum á stofnunum yfir í sjálfstæða búsetu með stuðningi. Reykjavíkurborg starfrækir búsetukjarna þar sem unnið er samkvæmt hugmyndakerfinu Virkjum, styðjum og leysum. Íslenskar rannsóknir á málefnum einstaklinga með geðfötlun hafa bent til að þjónusta í búsetukjörnum uppfylli þarfir notenda að verulegu leyti. Starfsmenn búsetukjarna aðstoða notendur við athafnir daglegs lífs. Í þessari rannsókn er með aðferðum eigindlegra rannsókna skoðuð viðhorf starfsfólks búsetukjarna til starfs síns og varpað ljósi á samband þeirra og notenda.Niðurstöður benda til þess að starfsfólk hafi jákvæð viðhorf gagnvart starfi sínu og notendum. Samband starfsfólk og notenda byggist á verklegri aðstoð, hvatningu og samveru innan og utan búsetukjarna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 680.43 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |