is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4869

Titill: 
  • Sáttamiðlun: Félagsráðgjafinn sem sáttamiðlari
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Síðastliðin ár hefur úrræði er kallast sáttamiðlun rutt sér leið í refsivörslukerfinu víða í hinum vestræna heimi. Sáttamiðlun byggir á hugmyndafræði uppbyggilegrar réttvísi sem fyrst kom fram á sjónarsviðið í nútímalegri mynd á áttunda áratug síðustu aldar. Þrátt fyrir góðan árangur og talsverðar vinsældir hjá nágrannaþjóðum okkar þá náði úrræðið ekki að ryðja sér til rúms hér á landi fyrr en snemma á þessari öld. Ritgerð þessi fjallar um almenna notkun sáttamiðlunar sem úrræðis í málum afbrotamanna ásamt notkun þess til að leysa úr ágreiningsmálum. Varpað er ljósi á sáttamiðlun á Íslandi, Norðurlöndunum, í Bandaríkjunum og Kanada, framkvæmd þessara landa og sögu sáttamiðlunar í löndunum. Starf sáttamiðlarans fær ítarlega umfjöllun með sérstakri áherslu á félagsráðgjafa í starfi sáttamiðlara en rannsóknir hafa sýnt fram á að þátttakendur sáttamiðlunar vilja virðingarfulla, þolinmóða og skilningsríka sáttamiðlara. Þetta gefur á margan hátt til kynna að félagsráðgjafar séu vel til þess fallnir að starfa sem sem sáttamiðlarar. Sáttamiðlun í málum ungra gerenda afbrota virðist gefa góða raun, gerendurnir iðrast og bera frekar ábyrgð á gjörðum sínum með þessum hætti sem sést vel á þeim tilraunaverkefnum sem hafa verið hér á landi og þeim skýrslum sem gefnar hafa verið út.

Samþykkt: 
  • 3.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4869


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Oliver B. Ingvarsson, kt. 3107842309. [BA ritgerð - Vor 2010].pdf310.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna