is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4877

Titill: 
  • Af himnum ofan hingað féll hann niður. Birtingarmyndir Lúsífers í bókmenntum síðustu þrjátíu ára
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Lúsífer er persóna sem oft kemur fram í bókmenntum og kannast margir við minnið um
    engilinn sem féll. Langur tími er hins vegar liðinn frá því að minnið kom fyrst fram og
    vinna rithöfundar í dag því ekki eins með efnið og gert var upprunalega. Í ritgerðinni er
    kannað með hvaða hætti Lúsífer er settur fram á annan hátt í bókmenntum nútímans en í
    bókmenntum fortíðar?
    Með því að taka fyrir fimm bókmenntaverk sem komið hafa út á síðustu þrjátíu árum er
    leitast við að svara þessum spurningum. Verkin sem tekin verða fyrir eru I, Lucifer
    (2002) eftir Glen Duncan, Sagan um Ísfólkið (1982-1989) eftir Margit Sandemo,
    Crimson (1998-2000) eftir Brian Augustyn, Sandman (1989-1997) eftir Neil Gaiman og
    Lucifer (1999-2006) eftir Mike Carey. Persónan er þá skoðuð m.a. út frá kenningum
    Propps um persónugreiningu í ævintýrum og kenningum Shklovskíjs um
    framandgervingu. Einnig er farið ítarlega í persónuleika Lúsífers, viðhorf hans gagnvart
    heiminum og samskipti hans við aðra í verkunum fimm og þau borin saman.
    Markmiðið með umfjölluninni er að ná góðri yfirsýn yfir persónuna eins og
    hún er sýnd í bókmenntum í dag og lýsa þeirri breytingu sem orðið hefur á
    henni frá upphafi sem og ólíkum birtingarmyndum hennar í þeim
    nútímaverkum sem hér eru til greiningar.

Samþykkt: 
  • 3.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4877


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerð.pdf289.56 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna