Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4919
Í ritgerðinni er fjallað um áhrif efnahagskreppunnar á þau tvö íslensku flugfélög sem eru með áætlunarflug til og frá Íslandi. Leitast er eftir að varpa ljósi á hvort að fall bankanna árið 2008 hafi orðið þess valdandi að flugfélögin hafi þurft að breyta markaðsáætlunum sínum til þess að mæta breytingum á aðstæðum í þjóðfélaginu. Framkvæmd voru viðtöl við forsvarsmenn flugfélaganna tveggja, Icelandair og Iceland Express, og í framhaldinu voru notaðar þrjár kenningar til að greina niðurstöður viðtalanna. Mikilvægi þess að flugfélögin kæmust óhult í gengum verstu hindranir efnahagskreppunnar á Íslandi var mikilvægt fyrir þjóðina í heild vegna landfræðilegri legu landsins í miðju Atlantshafinu því að ef að flugumferð legðist af þá yrðu Íslendingar að leita annarra leiða til að komast til og frá landinu. Niðurstaðan var sú að efnahagskreppan hafði áhrif á markaðsstarf flugfélaganna tveggja þar sem breyta þurfti nálgun þeirra við markhópa sína. Nýjum auglýsingaaðferðum var beitt sem og að nýir markhópar litu dagsins ljós.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS.Ritgerð - Lokaútgáfan.pdf | 1.47 MB | Lokaður | Heildartexti |