Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/496
Lokaverkefni þetta er unnið í áfanganum LOK 2106 við Ferðaþjónustubraut Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri í janúar til maí 2005. Markmið verkefnisins er að rannsaka lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsveit og leitast við að svara rannsóknarspurningunum:
• Hverjir eru helstu þættir markaðssetningar hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit?
• Hvert er viðhorf til markaðssamstarfs í framtíðinni?
• Eru lítil og meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit að nýta sér fræðslu og tækifæri til aukinnar þekkingar?
Til að svara rannsóknarspurningunum var gerð símakönnun meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit og var svarhlutfall 72,2%. Helstu niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að ekkert fyrirtækjanna starfar eftir markaðsáætlun og þau hafa takmarkað bolmagn til markaðssetningar. Viðhorf til markaðssamstarfs í framtíðinni er jákvætt, mjög mikill áhugi er á samstarfi innan Þingeyjarsveitar. Enginn forsvarsmanna fyrirtækjanna hafði sótt námskeið Fræþings síðustu 12 mánuði en allir nema tveir höfðu aflað sér aukinnar þekkingar hjá öðrum opinberum aðilum. Á grundvelli rannsóknarinnar er lagt til að aðferðir við markaðssetningu ferðamannastaðar og samstarfskeppni verði notaðar í Þingeyjarsveit.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
markads.pdf | 1.23 MB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - heild | ||
markads-dagbok.pdf | 51.29 kB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - dagbók | ||
markads-e.pdf | 158.85 kB | Opinn | Markaðssamstarf - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
markads-fs.pdf | 1.26 MB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - viðaukar | ||
markads-h.pdf | 174.21 kB | Opinn | Markaðssamstarf - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
markads-konnun.pdf | 47.28 kB | Takmarkaður | Markaðssamstarf - könnun | ||
markads-u.pdf | 98.72 kB | Opinn | Markaðssamstarf - útdráttur | Skoða/Opna |