is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4999

Titill: 
  • Tilvistarstefnan og heimur heyrnarlausra
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um tilvistarstefnu, einkum út frá Jean-Paul Sartre og þá möguleika sem hún opnar fyrir tilvist heyrnarlausra. Fyrst er tilvistarstefnan kynnt en hún snýst um mannlega tilvist, það að vera til í veröldinni og greiningu á merkingu mannsins í veröldinni. Tilvistarstefnan svarar ýmsum spurningum um tilveruna með ákveðnum
    hætti. Til dæmis er maðurinn algjörlega frjáls í tilveru sinni og er sjálfur við stjórnvölinn hvað varðar eigin lífsbraut með því að skapa eigið sjálf, ásamt því að bera ábyrgð á vali sínu, en þetta skiptir máli fyrir skilning heyrnarlausra á tilveru sinni. Síðan eru kynnt nokkur fræðilega sjónhorn á heyrnarleysi og fjallað bæði almennt um heyrnarleysi og einnig frá læknisfræðilegu, menningarlegu og félagslegu sjónhorni. Þá er gerð grein fyrir rannsóknaverkefni sem fólst í því að taka viðtöl við nokkra heyrnarlausa einstaklinga, þar sem þeir svara spurningum sem tengjast kenningum tilvistarstefnunnar. Spurningarnar eru að mestu leyti um eiginlegt líf, frelsi og val og byggjast á grunnhugmynd tilvistarstefnunnar um mannlífið í heiminum og tilgang mannlífsins. Með þessu eru leidd í ljós ýmis vandamál í tilvist heyrnarlausra í samfélaginu og lífinu.

Samþykkt: 
  • 7.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4999


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokritgerð - BA ritgerð - TILVISTARSTEFNAN OG HEIMUR HEYRNARLAUSRA.pdf367.34 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna