is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/505

Titill: 
  • Aðlögun, aðlögunarfrávik og meðferðarúrræði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Rannsóknin sem hér er greint frá beinist að því að skoða aðlögun barna í leikskólum, aðlögunarfrávik og hvernig leikskólinn vinnur með þau. Fjallað er um breytingar í þjóðfélaginu sem hafa áhrif á barnið í fjölskyldunni og hlutverk leikskólakennarans. Einnig er fjallað um mótun sjálfsmyndar og hvernig hún tengist aðlögun í leikskólanum og aðrir þættir eins og mikilvægi góðrar samvinnu á milli starfsfólks og foreldra og góðrar samvinnu á milli starfsfólks ef vel á að takast til með aðlögun. Þátttakendur í rannsókninni voru níu leikskólakennarar í sex leikskólum í Reykjavík og gagna var aflað með viðtölum. Það kom í ljós að aðlögunarferlið í leikskólunum sex var mjög svipað og gekk almennt vel fyrir sig. Aðlögunarerfiðleikarnir voru aðallega erfiður viðskilnaður barns við foreldra sína og foreldrar vilja sjálf stjórna ferðinni í aðlögunarferli barnsins. Leikskólinn vinnur þannig að hann er með fastmótaða aðlögun en tekið er mið af barninu hverju sinni og leikskólinn leggur ríka áherslu á að góð samvinna skapist á milli starfsfólks og foreldra barnsins svo að aðlögunarerfiðleikar verði sem minnstir.
    Lykilorð: Aðlögunarfrávik, meðferðarúrræði.

Samþykkt: 
  • 22.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/505


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Alögun-heild.pdf246.32 kBLokaðurHeildarverkPDF