is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5090

Titill: 
  • Máltaka ættleiddra barn. Samanburður á hefðbundinni máltöku barna og máltöku ættleiddra barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um máltöku ættleiddra barna af erlendum uppruna og hún borin saman við máltöku barna fæddra í landinu. Í hefðbundinni máltöku ganga börn í gegnum svipuð stig við tileinkun móðurmáls síns. Það sem skilur að máltöku ættleiddra barna og hefðbundna máltöku er það rof sem verður á máltöku ættleiddra barna við ættleiðingu. Settar eru upp tvær rannsóknarspurningar. Hver er munurinn á eðlilegri máltöku og máltöku ættleiddra barna af erlendum uppruna og hefur aldur ættleiðingar áhrif á máltöku ættleiddra barna.
    Í ljós kom að lítill munur er á hefðbundinni máltöku barna og máltöku ættleiddra barna. Það sem skilur að er að erlend ættleidd börn læra nýtt mál við komu til nýs lands. Klippt er þá á máltöku sem átti sér stað í heimalandi þeirra og ný máltaka hefst. Mörg börn þegja fyrstu vikurnar við komu til nýs lands en nokkrum vikum eða mánuðum seinna eru þau flest farin að mynda orð og setningar. Með markvissri málörvun frá foreldrum gengur flestum ættleiddum börnum vel við nýja máltöku. Ákveðin atriði verður þó að hafa í huga þegar kemur að máltöku þeirra, en þau skilja t.d. það sem sagt er við þau mun bókstaflegra en börn sem alast upp við hefðbundna máltöku.
    Aldur ættleiðingar getur haft áhrif á máltöku barna en því fyrr sem þau eru ættleidd því betur gengur máltakan. Í ritgerðinni er einnig fjallað um áhrif stofnanavistar á málþroska barna en oftast er það vegna lítillar örvunar sem máltöku þeirra seinkar. Gerð var samanburðarrannsókn á málþroska þriggja kínverskra ættleiddra stúlkna og málþroska þriggja íslenskra stúlkna á sama aldri og fæddra á Íslandi. Í ljós kom að lítill sem enginn munur var á málþroska þessara tveggja hópa en mælingar áttu sér stað þegar stúlkurnar voru 3;6 árs gamlar.

Samþykkt: 
  • 10.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5090


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gerdur Ba ritgerð.pdf.pdf328.12 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna