is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5191

Titill: 
  • Unnið fram eftir. Rannsókn á fjölskylduvænleika
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að rannsaka fjölskylduvænleika innan
    upplýsingatæknifyrirtækja á Íslandi. Auknar vinnustundir ásamt miklu álagi leiða af
    sér ójafnvægi milli vinnu og einkalífs. Smitálag verður frá vinnu yfir á einkalíf sem
    leiðir af sér kvíða og streitu hjá starfsmönnum. Útivinnandi mæður upplifa frekar
    þessa vinnutengdu streitu þar sem umönnunarábyrgðin er að mesti leyti á þeirra
    herðum. Til að vega upp á móti þessu er mikilvægt að sveigjanleiki sé til staðar innan
    skipulagsheilda ásamt skilningi og stuðningi stjórnenda fyrir fjölskylduvænu verklagi.
    Sveigjanleiki leiðir til aukins jafnvægis milli vinnu og einkalífs sem leiðir svo til
    meiri ánægju, bæði heima fyrir og í starfi. Þá eru vísbendingar um að kvenstjórnendur
    hafi meiri skilning á fjölskylduskuldbindingum starfsmanna og hafi fjölskylduvænni
    stjórnun.
    Rannsóknartilgátur voru sjö. Í fyrsta lagi að smitálag frá starfi yfir á einkalífið
    væri meira en frá einkalífi yfir á starfið. Í öðru lagi að sveigjanleiki stuðli að jafnvægi
    milli vinnu og einkalífs. Í þriðja lagi að meiri fjölskylduvænleiki og sveigjanleiki sé í
    fyrirtækjum þar sem konur eru stjórnendur. Í fjórða lagi að kvenstjórnendur sýni
    frekar skilning þegar starfsmenn þurfa að sinna fjölskyldutengdum málum. Í fimmta
    lagi að vinna þurfi fleiri vinnustundir til að ná frekari starfsframa innan
    skipulagsheilda. Í sjötta lagi að erfiðara sé fyrir konur að ná starfsframa innan
    skipulagsheilda í upplýsingatækni og í sjöunda lagi að meiri streita sé meðal kvenna
    en karla í skipulagsheildum í upplýsingatækni.
    Gerð var megindleg rannsókn þar sem lagður var spurningalisti fyrir
    starfsmenn skipulagsheilda í upplýsingatækni á Íslandi. Þátttakendur voru alls 181, 56
    konur og 125 karlar, en tveir þátttakendur kusu að svara ekki spurningu um kyn.
    Spurningalistinn samanstóð af spurningum í níu flokkum; vinnutími, sveigjanleiki,
    vinnustaðamenning, stuðningur stjórnenda, streita, smitálag frá starfi, smitálag frá
    einkalífi, upplifun á sveigjanleika og tryggð (tryggð, starfsánægja og lífsgæði).
    Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að rannsóknartilgáta eitt og fjögur stóðust.
    Smitálag er meira frá vinnu yfir á einkalíf en frá einkalífi yfir á vinnu. Kvenkyns
    stjórnendur í æðstu stöðum, sýna frekar skilning þegar starfsmenn þurfa að sinna
    fjölskyldutengdum málum. Þá leiddu niðurstöður einnig í ljós að ójafnvægi milli
    vinnu og einkalífs leiðir af sér streitu þó ekki sé kynbundinn munur þar á. Þessar
    niðurstöður eru í samræmi við erlendar rannsóknir.

Samþykkt: 
  • 12.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5191


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
unnið fram eftir_MS.pdf857.93 kBLokaðurHeildartextiPDF