is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/520

Titill: 
  • Greining á þorskverði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknin fjallar um mismun á verði á slægðum þorski, seldum á markaði eða í beinni sölu eftir því hvar og hvernig hann er veiddur. Aðferðin sem notuð er við rannsóknina er fervikagreining eða Analysis of Variance (ANOVA), tveggja þátta dreifigreining með samsvörun og einnig er einföld þáttagreining notuð. Greiningin nær yfir fimm ára tímabil, frá janúar 2000 til janúar 2005 og er athugað hvort það er marktækur munur á verði á slægðum þorski seldum á fiskmarkaði og í sölu beint til verkenda, þá er einnig kannað hvort það er munur eftir því með hvernig veiðarfærum þorskurinn er veiddur. Munur á þorskverði er einnig kannaður eftir landsvæðum. Það sem aðallega er verið að fjalla um er hver breytingin hefur verið og hvort hún sé mikil. Fjallað er aðeins um helstu veiðarfæri og hvernig þau eru notuð, einnig er fjallað lauslega um þorskveiðar og reglur um þær. Athygli vekur að verð á þorski hefur verið að lækka og er fjallað aðeins um það og hvað gæti valdið því. Þorskverð á fiskmarkaði er hærra en í beinni sölu en sá munur er þó að verða minni eftir því sem árin líða. Landsvæði skipta líka máli, í greiningunni er marktækur munur á verði eftir því hvar þorskurinn er seldur.
    Lykilorð:
    Fervikagreining
    Fiskmarkaðir
    Landsvæði
    Veiðarfæri
    Þorskur

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/520


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
greiningathorskv.pdf784.02 kBTakmarkaðurGreining á þorskverði - heildPDF
greiningathorskv_e.pdf111.68 kBOpinnGreining á þorskverði - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
greiningathorskv_h.pdf114.78 kBOpinnGreining á þorskverði - heimildaskráPDFSkoða/Opna
greiningathorskv_u.pdf108.4 kBOpinnGreining á þorskverði - útdrátturPDFSkoða/Opna