is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5231

Titill: 
  • Hvað ræður því að aðilar innan hestamennskunnar geti ekki unnið saman?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar er aðallega að fjalla um starfsemi og skipulagsmál
    Landsambands Hestamannafélaga og annarra aðila er koma að félags- og hagsmunamálum hestamanna með það að markmiði að leita svara við spurningunni “hvað ræður því að aðildarfélög innan hestamennskunnar geti ekki unnið nánar saman?”.
    Í upphafi ritgerðarinnar er almennt fjallað um aðferðarfræði og fjallað útskýrt við hvað
    sé átt með stjórnun, skipulagsheildum og stefnumótun. Þá er fjallað um skilgreininguna á stefnumótunarferlinu og/eða stefnumiðaðri stjórnun. Í meginhluta
    ritgerðarinnar er fjallað um sögu helstu hagsmunafélaga í íslenskri hestamennsku og
    gerð nokkur grein fyrir stöðu félaganna við stofnun þeirra og í dag. Birtar eru
    niðurstöður kannana sem höfundur gerði á meðal þingfulltrúa Landssambands
    Hestamannafélaga á landsþingi sambandsins haustið 2004 og á meðal hestamanna á
    fundum í hestamannafélögum sumarið 2009.
    Togstreyta og ágreiningsmál milli forystumanna hagsmunafélaga í íslenskri
    hestamennsku hafa sett svip á starfsemina og virðist hafa verið þrándur í götu fyrir
    skilvirkri stefnumótun – samvinnu félaganna og komið í veg fyrir tilraunir til þess að
    fara nýjar leiðir. Þeir sem svöruðu rannsóknarspurningum voru sammála um að rétt
    sé að standa að hagkvæmniathugun til að skoða hvort annað og breytt fyrirkomulag í
    félagsmálum hestamanna þjóni betur hagsmunum þeirra heldur en núverandi fyrirkomulag.
    Það er niðurstaða mín að eðlilegt og rétt sé af umræddum hagsmunafélögum að sameinast um vinnu og undirbúning að samræmdri langtímaáætlun (stefnumótun) fyrir alla þætti hestamennskunnar á Íslandi. Þannig megi marka framtíðarstefnu til að ná fram sameiginlegum markmiðum.

Samþykkt: 
  • 12.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5231


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-ritgerð 2010.pdf393.29 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna