is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5350

Titill: 
  • Mat á vanlíðan hjá sjúklingum með krabbamein
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að skoða vanlíðan hjá sjúklingum með krabbamein, áhættuþætti fyrir vanlíðan, áhrif hennar og hvernig staðið skuli að mati á vanlíðan meðal krabbameinssjúklinga. Sérstaklega er tekið fyrir matstæki sem NCCN (National Comprehensive Cancer Network) hefur þróað.
    Á Íslandi greinast um 1300 manns með krabbamein á ári hverju og um þriðjungur Íslendinga greinast með krabbamein einhvern tíman á lífsleiðinni. Vanlíðan er algengt vandamál meðal krabbameinssjúklinga og hafa rannsóknir sýnt fram á að um þriðjungur krabbameinssjúklinga þjást af vanlíðan. Vanlíðan hefur mikil áhrif á lífsgæði sjúklinga og geta sálræn vandamál haft áhrif á lífshorfur krabbameins-sjúklinga. Þess vegna er mikilvægt er að meta og meðhöndla þetta vandamál.
    NCCN matstækið samanstendur af vanlíðunarhitamæli þar sem sjúklingurinn segir til um vanlíðan sína á skalanum 0-10 og vandamálalista þar sem sjúklingurinn getur gefið til kynna á hvaða sviðum vanlíðanin er. Skoðaðar voru 15 rannsóknir þar sem próffræðilegir eiginleikar mælitækisins voru skoðaðir. Helstu niðurstöður þessa yfirlits eru þær að NCCN mælitækið er auðvelt í notkun og hafa rannsóknir sýnt fram á lögmæti mælitækisins við mat á vanlíðan meðal krabbameinssjúklinga.

Samþykkt: 
  • 20.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5350


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LOKAVERKEFNI.pdf573.86 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna