is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Rannsóknarverkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5436

Titill: 
  • Metýlering og DNA fjöldabreytingar á p16(INK4a) (CDKN2A) í stökum brjóstakrabbameinum
Útdráttur: 
  • Bæling á genatjáningu með sviperfðabreytingum s.s. metýleringu er þekkt leið að óvirkjun æxlisbæligena í krabbameinum. p16INK4a (CDKN2A) er vel þekkt æxlisbæligen með hlutverk í varðstöðvum frumuhrings. Genaafurðir þess hindra kínasavirkni CDK4 og CDK6 með því að hindra bindingu þeirra við Cyclin-D1 sem þannig leiðir til þess að fruman kemst ekki í gegnum G1 fasa frumuhringsins. Sýnt hefur verið fram á að p16INK4a gen er óvirkjað með sviperfðabreytingum í ýmsum krabbameinum, þ.á.m. brjóstakrabbameini, sem leiðir til þess að aðgengi umritunarþátta að geninu er hindrað og tjáning þess bæld. Fyrri rannsóknir sýna fram á að metýlering á p16INK4a geni komi fyrir í 10-15% af öllum stökum tilfellum brjóstakrabbameina.
    Markmið verkefnisins var að kanna metýleringu á p16INK4a geni í stökum tilfellum brjóstakrabbameina og tengsl við mismunandi undirgerðir brjóstakrabbameina með MSP (methylation-specific PCR). Áður höfðu DNA fjöldabreytingar verið skoðaðar í erfðamengi sýnahópsins með aCGH tækni og einnig tjáning á p16INK4a genaafurðum með mótefnalitunum. Annað markmið var að kanna p16INK4a metýleringu í tengslum við úrfellingu á geninu og tjáningu á genaafurðum. Ekkert sýni greindist með metýleringu sem breytti áherslum verkefnisins þannig að tengslum DNA fjöldabreytinga, með sérstakri áherslu á p16INK4a, við tjáningu á genaafurðum p16INK4a og svipgerð.

Samþykkt: 
  • 28.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5436


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
GBJ_Metylering_og_DNA_fjoldabreytingar_p16_c.pdf411.96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna