is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5474

Titill: 
  • Fræðileg greining á hugtakinu fjölskylduvirkni í hjúkrun
  • Titill er á ensku Theoretical analysis of the concept of family functioning in nursing
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Mat á virkni í fjölskyldum gerir hjúkrunarfræðingum kleift að skilja betur breytingar á daglegum athöfnum og samskiptum fjölskyldna þar sem einn fjölskyldumeðlimur glímir við langvinn veikindi eða sjúkdóm. Slíka vitneskju er bæði hægt að nota í klínískum tilgangi og til að meta árangur fjölskylduhjúkrunar.
    Tilgangur þessa verkefnis er meðal annars að kanna þróun mælitækja sem mæla fjölskylduvirkni og hafa verið notuð í hjúkrun síðastliðin fimm ár. Leitast verður við að skoða kenningarfræðilegan bakgrunn og uppbyggingu mælitækjanna og samanburður á þeim framkvæmdur. Vangaveltur verða um mikilvægi hugtaksins fjölskylduvirkni í hjúkrun og hvort það er góður mælikvarði á árangur fjölskylduhjúkrunar.
    Helstu niðurstöður sýna að mælitæki í hjúkrun sem mæla fjölskylduvirkni eru ennþá á þróunarstigi. Þörf er á frekari rannsóknarvinnu hvað varðar öll mælitækin. Einnig kemur fram í niðurstöðum að kenningarfræðilegur bakgrunnur tækjanna er sóttur úr mismunandi áttum.
    Verkefnið er ákveðið framlag til þekkingarþróunar innan fjölskylduhjúkrunar og hefur því gildi fyrir hjúkrun. Mikilvægt er að koma auga á þá þætti sem takmarka virkni í fjölskyldum vegna þess að veikindi eða sjúkdómur eins fjölskyldumeðlims hefur áhrif á heilbrigði og virkni allrar fjölskyldunnar.

Samþykkt: 
  • 31.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5474


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
(Lokaverkefni- Hjukrun 2010 e Gudnyju Ragnarsdottur-skemman-2010).pdf168.38 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna