Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/551
Hvernig má efla enskukennslu í grunnskólum á Íslandi? Í þessari ritgerð er fjallað um samþætta kennslu í tungumálum við aðrar námsgreinar grunnskólans. Samþætt kennsla er þegar viðfangsefni í námi eru sótt til fleiri en einnar námsgreinar.
Athyglinni er sérstaklega beint að enskri tungu vegna útbreiðslu enskunnar og stöðu hennar sem alþjóðamáls í heiminum í dag.
Í upphafi er rakið hvernig kennsluaðferðir við tungumálakennslu hafa þróast og hvernig áherslur hafa breyst þegar kemur að kennslu í tungumálum. Áherslan hefur færst frá því að erlent tungumál sé kennt á móðurmáli nemenda yfir í að nota móðurmálið sem minnst. Þar kemur að hugmyndinni bak við samþætta kennslu á tungumáli og öðrum námsgreinum.
Skoðað er hvaða áhrif samþætting tungumálakennslunnar hefur á móðurmál og áhugahvöt nemenda. Ásamt því er farið í gegnum Aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla til að skoða hvort eitthvað megi finna þar sem mælir með eða á móti slíkri samþættingu.
Að lokum eru settar fram vangaveltur um val á námsefni og kennsluaðferð sem hentað gæti samþættri kennslu í ensku og öðrum námsgreinum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
throunkennsluad.pdf | 272.44 kB | Takmarkaður | Þróun kennsluaðferða við tungumálakennslu - heild |