is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/560

Titill: 
  • Stærðfræðikennsla á yngsta stigi : kennsluaðferðir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Kennsluaðferðir eru mikilvægur þáttur í allri kennslu í grunnskólum. Til að kennsla skili árangri þurfa kennsluaðferðir að vera fjölbreyttar og góð þekking kennara á þeim þarf að vera til staðar. Efnið sem er til umfjöllunar í þessari ritgerð eru kennsluaðferðir í stærðfræði á yngsta stigi í grunnskólum á Akureyri.
    Tilgangur þessa verkefnis var að kanna það hvort kennsluaðferðir sem notaðar eru við stærðfræðikennslu á yngsta stigi í grunnskólum á Akureyri séu fjölbreyttar og í samræmi við kröfur aðalnámskrár. Til að fá svar við þessu var notuð megindleg lýsandi könnun framkvæmd með spurningalista sem gerður var sérstaklega fyrir þessa könnun. Sendur var spurningalisti til þeirra sem kenndu stærðfræði á yngsta stigi í grunnskólum á Akureyri. Alls fengu 52 þátttakendur spurningalistann og fengust svör frá 42 þátttakendum.
    Helstu niðurstöður eru þær að þátttakendur nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og virðast sýna kennsluaðferðum áhuga. Þær kennsluaðferðir sem notaðar eru í spurningalistanum eru samkvæmt flokkunarkerfi Ingvars Sigurgeirssonar. Algengasta kennsluaðferðin sem þátttakendur nota er útlistunarkennsla en þar á eftir koma þulunám og þjálfunaræfingar, verklegar æfingar og þrautalausnir. Sú kennsluaðferð sem minnst er notuð eru sjálfstæð skapandi viðfangsefni. Þær kennsluaðferðir sem notaðar eru virðast vera í nokkuð góðu samræmi við þær kröfur sem aðalnámskrá grunnskóla í stærðfræði gerir. Þekking þátttakenda á kennsluaðferðum er almennt góð og í ljós kom að þær kennsluaðferðir sem viðkomandi þátttakandi þekkir lítið eru ekki notaðar af hans hálfu. Það segir manni að þátttakendur eru meðvitaðir um gildi kennsluaðferða og að röng notkun á þeim er ekki líkleg til að skila árangri. Þátttakendur telja notkun hjálpargagna vera mikilvæga og töluverð fjölbreytni ríkir í notkun þeirra.

Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/560


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
staerdfraedi.pdf4.36 MBOpinnStærðfræðikennsla á yngsta stigi - heildPDFSkoða/Opna