is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5627

Titill: 
  • Inn og út aðaldyramegin : framhaldsskóli fyrir alla, stuðningsþjónusta fyrir nemendur á bóknámsbrautum sem eiga við hindranir að stríða í námi.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um stuðningsþjónustu fyrir nemendur á
    bóknámsbrautum sem eiga við hindranir að stríða í námi og byggir á
    þeirri staðhæfingu að framhaldsskóli eigi að vera fyrir alla. Að nemendur
    eigi ekki eingöngu að fá að hefja framhaldsskólanám heldur eigi þeir
    einnig að útskrifast frá skólanum. Þetta er starfendarannsókn og er gerð
    úttekt á stuðningsþjónustu í einum framhaldsskóla landsins. Úttektin
    byggir annars vegar á lýsingu rannsakanda á þjónustunni og hins vegar á
    viðtölum við þrjá stúdenta skólans sem nutu þjónustunnar. Það er gert í
    því skyni að athuga hvaða stuðning nemendur skólans sem eiga við
    hindranir að stríða í námi fá og til að sjá hvaða stuðning nemendurnir
    ættu að fá. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stuðningsþjónustan
    hafi skilað árangri og að þjónusta við nemendur hafi verið
    skynsamleg. Viðmælendurnir lýstu ánægju sinni með stuðninginn sem
    þeir fengu. Það kemur í ljós að stuðningsþjónustan er margþætt og
    skiptist í mat, ráðgjöf og aðstoð við nemendur.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda ennfremur til þess að
    stuðningsþjónusta við framhaldsskólanema þarf að vera einstaklingsmiðuð
    og er þess vegna síbreytileg. Starfsmenn þjónustunnar þurfa að
    vera sveigjanlegir, fylgjast vel með skólastarfinu og leiðum sem geta nýst
    skjólstæðingum þeirra, til dæmis tækninýjungum.
    Lykilorð: Stoðþjónusta, blinda, heyrnarleysi, hreyfihömlun, innflytjandi, margbreytileiki, réttlæti, lýðræði.
    This study is about support service in academic studies for students with
    learning obstacles and is based on the premise that Upper Secondary
    Schools be for everyone, that students are not only meant to start school
    but that they should also graduate. This is an action research and an
    enquiry into a support system in one Upper Secondary School in Iceland.
    The enquiry is based on one hand on the researcher´s description of the
    support service and on the other hand on interviews with three graduated
    students who got the support. The purpose of it is to observe what support
    students with learning obstacles should get.
    The conclusion of the study indicates that this support system has
    been successful and that students have been supported in a sensible way.
    The interlocutors expressed their pleasure over the support they got
    during their stay in the school. It appears that the support system is varied
    and addresses three areas: assessment, counsel and students assistance.
    The conclusion of the study also indicates that the support service
    with students in Upper secondary schools has to be differentiated and
    varied. The service emploees have to be flexible, keep up with the
    schoolwork and ways that their students can utilize, for example technical
    innovations.
    Keywords:
    Upper secondary schools, learning obstacles, supporting
    service, blindness, deafness, physical disability, immigrant, multiplicity,
    justice and democracy.

Samþykkt: 
  • 16.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5627


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meistararitg_fixed.pdf395.99 kBLokaðurHeildartextiPDF