is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5653

Titill: 
  • Flott án fíknar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis er að meta forvarnarverkefnið, Flott án fíknar,
    með tilliti til þess hvort uppbygging þess er studd af rannsóknum, hvort
    það uppfyllir skilyrði þróunarverkefnis og hvort það uppfyllir þær
    væntingar sem íslenskir unglingar gera til forvarnarverkefna.
    Í ritgerðinni er gert grein fyrir forvarnaverkefninu Flott án fíknar og
    hvernig það varð til. Í henni er forvarnarverkefninu lýst, hugmyndafræði
    þess, þróun og útbreiðslu í þann tæpa áratug sem það hefur verið
    starfrækt. Forvarnaverkefnið sem byggt er á jákvæðri styrkingu telst til
    nútíma forvarna og nær til alls í senn, tóbaksvarna, áfengisvarna og varna
    gegn ólöglegum vímuefnum. Sagt er frá hvernig kynningarstarf hefur
    farið fram, hvernig starfsemi klúbbanna er háttað og hvernig starfið hefur
    teygt sig úr grunnskólum og til eldri ungmenna. Þar er einnig gerð grein
    fyrir skilgreiningu höfundar á unglingsárunum. Á eftir lýsingu
    verkefnisins er fjallað um ýmsar innlendar og erlendar rannsóknir sem
    gerðar hafa verið á áhrifum jafningjahópa og á líkum þess að unglingar
    leiðist út í áhættuhegðun. Einnig eru tilgreindir mismunandi hópar
    jafningja og fjallað um forvarnaráhrif hvers um sig. Síðan ræðir höfundur
    um hvernig rannsóknir þessar styðja við uppbyggingu
    forvarnarverkefnisins Flott án fíknar, sýnir fram á að verkefnið stenst
    fræðilegar forsendur þess að vera þróunarverkefni og gerðar tillögur að
    áframhaldandi starfsemi forvarnarverkefnisins.
    Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að aðferðafræði forvarnarverkefnisins,
    Flott án fíknar, er studd af erlendum og innlendum rannsóknum og
    uppfyllir einnig óskir unglinga um forvarnaraðferðir eins og þær eru
    settar fram í svörum þeirra við könnun sem hefur verið lögð fyrir alla 14
    ára unglinga á Íslandi um fjögurra ára skeið.

Samþykkt: 
  • 21.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5653


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
02.06.2010.pdf508.59 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna