is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/565

Titill: 
  • Mikilvægi samstarfs fyrstu tveggja skólastiganna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um samstarf milli leikskóla og grunnskóla, hversu mikilvægt samstarfið er milli tveggja fyrstu skólastiganna og hversu miklu máli það skiptir að kennarar, foreldrar og stjórnendur hafi jákvæð viðhorf til samstarfsins. Fjallað er um samstarf skólanna við foreldra barna og aðild þeirra að samstarfi. Gerð var eigindleg rannsókn í formi viðtala við stjórnendur og kennara leik- og grunnskóla á Akureyri. Markmiðið með rannsókninni var að svara tveimur rannsóknarspurningum: Hversu mikilvægt er samstarf milli leik- og grunnskóla og Hver eru viðhorf kennara til samstarfs. Í 2. kafla er gerð grein fyrir hvernig samstarf hefur breyst á milli leik-, grunnskóla og heimila barna á síðustu árum og áratugum. Könnuð er stefna sveitarfélaga til samstarfs og gerð grein fyrir henni. Aðaláherslan er þó lögð á að skýra frá því samstarfi sem er með leikskólum og grunnskólum í þeim tilgangi að auðvelda nemendum skiptin úr leikskóla í grunnskóla. Í 3. kafla er umfjöllun um elstu börnin í leikskólanum og yngstu börnin í grunnskólanum. Þar er sagt frá áherslum í starfi með leikskólabörnum og hvernig tekið er á móti þeim í grunnskólanum. Í 4. kafla er sagt frá rannsókn, rannsóknaraðferð, framkvæmd könnunnar og fleira og í 5. kafla er sagt frá niðurstöðum rannsóknarinnar þar sem greint er frá viðhorfum stjórnenda og kennara til samstarfs og er vitnað í þeirra orð í kaflanum. Samantekt er á eftir hverjum kafla þar sem greint er frá hvað fjallað er um í kaflanum. Í 6. kafla, umræðukafla, ræða höfundar um efnið og bera saman það sem fram kemur í fræðilegri umfjöllun og hjá viðmælendum um samstarf. Leitast er við að svara rannsóknarspurningum og hugað að samstarfi komandi ára og hvernig hægt er að búa að því og efla það.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/565


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
mikilvaegisamstarfs.pdf418.17 kBTakmarkaðurMikilvægi samstarfs fyrstu tveggja skólastiganna - heildPDF
mikilvaegisamstarfs_e.pdf101.32 kBOpinnMikilvægi samstarfs fyrstu tveggja skólastiganna - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
mikilvaegisamstarfs_h.pdf108.06 kBOpinnMikilvægi samstarfs fyrstu tveggja skólastiganna - heimildaskráPDFSkoða/Opna
mikilvaegisamstarfs_u.pdf104.14 kBOpinnMikilvægi samstarfs fyrstu tveggja skólastiganna - útdrátturPDFSkoða/Opna