is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5707

Titill: 
  • Bakkafjöruhöfn : áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Almennar samgöngur um Ísland er sífellt verið að bæta og munu gömlu
    malarvegirnir brátt heyra sögunni til. Hins vegar hefur samgönguleiðin á
    milli Vestmannaeyja og fasta landsins orðið útundan í þessum efnum, þar
    til árið 2006, en þá var loks tekin ákvörðun um að höfn í Bakkafjöru yrði
    raunin, öðru nafni Landeyjahöfn.
    Þann 1. júlí 2010 verður því brotið blað í sögu samgangna á milli lands og
    Eyja með því að hefja siglingar á milli Vestmannaeyja og
    Bakkafjöruhafnar í stað Þorlákshafnar. Er þetta mikil samgöngubót fyrir
    samfélagið í Vestmannaeyjum og er meginmarkmið þessa verkefnis að
    skoða þá kosti og þau tækifæri sem koma til með að opnast með tilkomu
    Bakkafjöruhafnar.
    Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum er skoðuð sérstaklega og þeir
    möguleikar sem opnast með auknum ferðamannastraumi til Eyja. Skoðað
    er hvort og hvernig auknar tekjur myndu skila sér inn í bæjarsjóð með
    þessum aukna ferðamannastraumi.
    Niðurstöður leiddu í ljós að strax við opnun Bakkafjöruhafnar má reikna
    með aukinni aðsókn ferðamanna í sund, þar sem sund er vinsælasta
    afþreying sem ferðamenn greiða fyrir. Þar af leiðandi munu þjónustutekjur
    vegna aðgöngueyris í sund skila sér sem auknar tekjur inn í bæjarsjóð.
    Síðan, með tíma og reynslu af Bakkafjöru, munu auknar tekjur skila sér
    inn í bæjarsjóð í formi útsvars, aukinna tekna vegna fasteignagjalda og
    annarra þjónustutekna en aðgöngueyris í sund.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til janúar 2012
Samþykkt: 
  • 23.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5707


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BAKKAFJÖRUHÖFN.pdf499 kBOpinn"Bakkafjöruhöfn:Áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar"-heildPDFSkoða/Opna
EFNISYFIRLIT.pdf14.86 kBOpinn"Bakkafjöruhöfn:Áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar"-efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
HEIMILDASKRÁ.pdf34.61 kBOpinn"Bakkafjöruhöfn:Áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar"-heimildaskráPDFSkoða/Opna