Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5732
Miklar sviptingar urðu á íslensku fjármálalífi á haustmánuðum 2008 þegar íslensku bankarnir hrundu. SP-Fjármögnun hf. er eitt þeirra fyrirtækja sem fór ekki varhluta af þessu bankahruni og í kjölfar bankahruns urður miklar breytingar á starfsemi fyrirtækisins. Þessar aðstæður urðu til þess að rannsóknarspurning varð til sem er:
Hversu mikil áhrif hefur bankahrunið haft á starfsánægju hjá
SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum á stjórnendur
og aðra starfsmenn?
Í ritgerðinni er fjallað almennt um mannauð, mannauðsstjórnun, breytingastjórnun og svo starfsánægju. Einnig er lögð fyrir könnun á meðal starfsmanna sem ætti að geta sagt til um útkomu rannsóknarspurningarinnar. Það að lenda í stórum breytingum þurfa margir þættir að spila saman og starfsfólk þarf að vera jákvætt að takast á við þær breytingar sem koma upp svo breytingarnar skili tilætluðum árangri. Það er hlutverk stjórnenda að koma því þannig fyrir að sem bestur árangur verði af breytingaferli. Það kom síðan í ljós í könnuninni sem lögð var fyrir starfmenn og stjórnendur að það er eitt og annað sem betur hefði mátt fara svo breytingarnar myndu skila tilætluðum árangri.
Lykilorð:
Mannauður
Breytingastjórnun
Líðan
Starfsánægja
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hversu mikil áhrif hefur bankahrundið haft á starfsánægju hjá SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum á stjórnendur og aðra starfsmenn-Efnisyfirlit.pdf | 51.23 kB | Opinn | "Hversu mikil áhrif hefur bankahrunið haft á starfsánægju hjá SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum stjórnenda og aðra starfsmenn?"-efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Hversu mikil áhrif hefur bankahrunið haft á starfsánægju hjá SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum á stjórnendur og aðra starfsmenn-heild.pdf | 822.24 kB | Lokaður | "Hversu mikil áhrif hefur bankahrundið haft á starfsánægju hjá SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum á stjórnendur og aðra starfsmenn?"-heild | ||
Hversu mikil áhrif hefur bankahrunið haft á starfsánægju hjá SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum á stjórnendur og aðra starfsmenn-Heimildaskrá.pdf | 36.7 kB | Opinn | Hversu mikil áhrif hefur bankahrundið haft á starfsánægju hjá SP-Fjármögnun og er munur á áhrifum á stjórnendur og aðra starfsmenn?"-heimildaskrá | Skoða/Opna |