Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5801
Viðfangsefni þessa verkefnis, sem er rannsóknaráætlun, er ofbeldi í nánum samböndum. Sérstaklega er lögð áhersla á ofbeldi á meðgöngu og hlutverk ljósmæðra því tengdu.
Samkvæmt Félags- og tryggingarmálaráðneytinu (2009) hafa um 22% íslenskra kvenna, eða konur búsettar á Íslandi, upplifað ofbeldi í nánum samböndum á lífsleiðinni en 1,6% á síðastliðnu ári. Hafi ofbeldi verið beitt í nánu sambandi fyrir þungun þá heldur það áfram, í um 40-60% tilfella, á meðgöngunni og í um 30% tilfella byrjar ofbeldi þegar þungun á sér stað. Ofbeldi á meðgöngu hefur verið tengt við ýmsa meðgöngukvilla s.s. fylgjulos, léttbura- og/eða fyrirburafæðingu, aukna tíðni fósturláta og beinbrot fósturs. Einnig hefur sýnt sig að ofbeldi á meðgöngu getur aukið tíðni þunglyndis hjá verðandi móður og meiri líkur eru á streituröskun, áfengis- og vímuefnanotkun, almennt óhollari lífstíll og svefnleysi.
Ljósmæður eru í lykilhlutverki til að uppgötva ofbeldi hjá konum á meðgöngu, aðstoða þær og koma til þeirra upplýsingum um hvert þær geti leitað eftir frekari upplýsingum og stuðningi. Markmiðið með fyrirhugaðri rannsókn er að kanna þekkingu og viðhorf ljósmæðra hérlendis á ofbeldi, hvort þær geri sér grein fyrir tíðni ofbeldis, hvað hindrar þær í að spyrja konur um ofbeldi og hvort aldur og menntun hafi áhrif þar á. Jafnframt verður viðhorf ljósmæðra gagnvart frekari þjálfun og menntun skoðuð.
Í fyrirhugaðri rannsókn verður notast við megindlega rannsóknaraðferð og spurningalistar lagðir fyrir allar starfandi ljósmæður á Íslandi. Notast verður við tvennskonar spurningalista, annarsvegar bakgrunnsspurningalista sem höfundar hönnuðu og hinsvegar sem hannaður var af Lazenbatt o.fl. og fengið var leyfi til að nota.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ofbeldi á meðgöngu, þekking og viðhorf ljósmæðra.pdf | 919.99 kB | Lokaður | Ofbeldi á meðgöngu, þekking og viðhorf ljósmæðra - heild |