Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5871
Markmið verkefnisins er að rannsaka samgöngumynstur og ferðavenjur almennings á utanverðum Tröllaskaga. Byrjað er á því að fara yfir samgöngur í sögulegu samhengi og skoðaðar kenningar um búferlaflutninga þeir tengjast breytingum í samgöngukerfinu. Haustið 2009 var gerð könnun á vegum Háskólans á Akureyri á ferðavenjum fólks á Tröllaskaga vegna tilkomu Héðinsfjarðarganga. Könnunin var lögð fyrir íbúa í sveitarfélaginu Fjallabyggð og þar var safnað ítarlegum upplýsingum um ferðir bæði vegna vinnu og eins vegna annarra erinda. Markmið verkefnisins er að greina þessi gögn og athuga hvort munur er á ferðavenjum fólks eftir algengum bakgrunnsþáttum á borð við menntun og kynferði. Ennfremur að bera niðurstöðurnar saman við tiltækar upplýsingar um ferðavenjur fólks annarsstaðar á landinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefnid - Vidar.pdf | 536.01 kB | Opinn | ,,Ferðavenjur almennings á Tröllaskaga" - heild | Skoða/Opna |