is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5915

Titill: 
  • Heilsufarslegar breytingar sjúklinga í offitumeðferð á Reykjalundi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ofþyngd og offita er sífellt algengari hjá einstaklingum á öllum aldri í ríkjum heimsins. Á Íslandi hafa verið gerðar rannsóknir sem sýna svipaða þróun hér á landi á holdafari og annars staðar. Skortur er á tölfræðilegum upplýsingum um árangur í þeim meðferðum gegn offitu sem viðhafðar eru hér á landi með varanlegar lífsstílsbreytingar að leiðarljósi.
    Markmið þessarar rannsóknar var að skoða árangur offitumeðferðar á Reykjalundi á þrek, púls- og blóðþrýstingssvörun á þolprófi í offitumeðferð. Auk þess var mat sjúklinganna á eigin líðan kannað með spurningalistum og borið saman við árangur. Í þessari rannsókn voru einnig skoðaðar breytingar á lífsgæðum einstaklinganna.
    Eingöngu konum var boðin þátttaka í rannsókninni þar sem þær hafa verið í miklum meirihluta þeirra sem komið hafa í offitumeðferð á Reykjalund. 47 konur (n=47) á aldrinum 20–60 ára samþykktu þátttöku og notaðar voru mælingar frá október 2007 – júlí 2009.
    Eftirfarandi mælingar voru notaðar úr forskoðun sjúklinga og að lokinni göngudeildarmeðferð og fimm vikna meðferðartímabili á dagdeild: hæð, þyngd, líkamsþyngdarstuðull (LÞS), mittismál, BIA rafleiðnimæling, 6 mín göngupróf, þolpróf á hjóli, ásamt púls- og blóðþrýstingssvörun. Auk þess voru lagðir fyrir spurningalistarnir SF-36v2 um heilsutengd lífsgæði, OP kvarði um sálfélagslega líðan tengdri offitu, BAI kvíðakvarði og BDI-II þunglyndiskvarði.
    Helstu niðurstöður sýndu að þátttakendur léttust að meðaltali um 11 kg (p<0,001), LÞS breyttist um 4 kg/m2 (p<0,001), heildarhámarksálag í þolprófi á hjóli jókst um 12% (p<0,001), sem bætti þrekölu (v/kg) um 21% (p<0,001) og hámarkssúrefnisnotkun (ml/kg/mín) jókst um 18% (p<0,001). Marktæk lækkun varð á blóðþrýstingi og í púlsmælingum (p<0,05), að undanskildum hámarkspúlsi (p>0,05). Niðurstöður allra spurningalista sýndu marktækan jákvæðan mun á heildarstigum um 19–85% (p<0,001).
    Allar líkams- og heilsufarslegar mælingar sýndu jákvæðar breytingar og mat einstaklinganna á andlegri og líkamlegri líðan reyndist enn jákvæðari.
    Niðurstöðurnar undirstrika þýðingu markvissrar offitumeðferðar með áherslu á varanlegar lífsstílsbreytingar. Gagnlegt og áhugavert væri að skoða langtímaárangur sömu offitumeðferðar til að meta heildarárangur. Ávinningurinn af breyttum lífsstíl er óumdeildur til aukins heilbrigðis fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið í heild. 
    Lykilorð: Ofþyngd, offitumeðferð,þrek, líkamleg líðan, andleg líðan, lífsstílsbreytingar.

Styrktaraðili: 
  • Reykjalundur, endurhæfingarstöð SÍBS
Athugasemdir: 
  • Ábyrgðarmaður rannsóknar: Ludvig Á. Guðmundsson
Samþykkt: 
  • 30.6.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5915


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS lokaverkefni. SteinunnHH, vefútgáfa 20. maí.pdf1.39 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna