is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/592

Titill: 
  • Sjónskerðing : áhrif sjónskerðingar á félagsþroska leikskólabarna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi lokaritgerð fjallar um börn með sjónskerðingu á leikskólaaldri og áhrif
    sjónskerðingar á félagsþroska þeirra. Ritgerðinni er skipti í tvo meginhluta.
    Fyrri hluti ritgerðarinnar fjallar um orsakir og birtingarmyndir sjónskerðingar,
    kenningar um þróun félagsþroska og áhrif skertrar sjónar á félagsfærni barna.
    Sjónskerðing nær yfir vítt svið og birtingarmyndir og orsakir eru ólíkar. Fjallað er
    stuttlega um eðli sjónskerðingar og helstu orsakir sjónskerðingar hjá börnum. Greint er
    frá áhrifum sjónskerðingar á félagsþroska og helstu einkenni barna með sjónskerðingu í
    hópi jafningja og í leik. Einnig eru skoðaðar leiðir til eflingar félagsþroska í
    leikskólastarfi.
    Í síðari hluta ritgerðarinnar er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar. Tilgangur
    hennar var að kanna félagsfærni barna með sjónskerðingu og hvaða leiðir starfsfólk
    leikskóla fer til að efla félagsfærni þeirra. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru að
    starfsfólk leikskóla taldi að börnin stæðu almennt vel félagslega. Niðurstöður
    rannsóknarinnar sýndu einnig að ef til vill er leikurinn vannýttur sem námsleið hjá
    börnum með sjónskerðingu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/592


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
sjonskerding.pdf957.75 kBTakmarkaðurSjónskerðing - heildPDF
sjonskerding_e.pdf80.52 kBOpinnSjónskerðing - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
sjonskerding_h.pdf130.85 kBOpinnSjónskerðing - heimildaskráPDFSkoða/Opna
sjonskerding_u.pdf63.44 kBOpinnSjónskerðing - útdrátturPDFSkoða/Opna