Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5991
Í ritgerðinni Þingskipaðar rannsóknarnefndir er leitast við að varpa ljósi á tilurð og þróun þingskipaðra rannsóknarnefnda á Íslandi. Þingskipaðar rannsóknarnefndir eru hluti af eftirliti löggjafarvaldsins með framkvæmdarvaldinu sem er eitt af aðalhlutverkum Alþingis. Samanburður er gerður á þingeftirliti á Bretlandi, Danmörku og Noregi. Sá samanburður leiðir í ljós að rannsóknarnefndir eru notaðar í auknum mæli og í Danmörku voru sett almenn lög um rannsóknarnefndir og drög að frumvarpi hafa verið lögð fram í Noregi. Á Íslandi er heimild til skipan rannsóknarnefnda þingmanna í 39. gr. stjórnarskrárinnar en það virðist úrelt tæki, þ.e. það hefur ekki verið notað síðan 1956. Í allt hafa átta nefndir verið skipaðar frá því að þingræði komst á 1904. Nokkur skil urðu við skipan rannsóknarnefndar vegna Hafskipsmálsins í lok árs 1985 en þá var ákveðið að skipa óháða sérfræðinga. Rýnt er í kringumstæður skipunar þessara átta nefnda og að lokum dregin sú ályktun um notkun rannsóknarnefnda á Íslandi að þær hafi lítið verið notaðar vegna þess að íslensk stjórnmálamenning einkennist af átökum og valdabaráttu frekar en samstarfi og samráði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
rannsóknarnefndir.pdf | 640.75 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |